| © 2004 Rasmus ehf |
Tölfræði |
|
Kynning 1
Tíðnitöflur - súlurit - línurit
Tíu unglingar voru spurðir hve oft þeir fóru í bíó (kvikmyndahús) síðasta mánuð.
| Nafn: | Fjöldi bíóferða |
| Björn | 1 |
| Anna | 0 |
| Siggi | 0 |
| Stína | 2 |
| Óli | 1 |
| Magnús | 2 |
| Gréta | 1 |
| Rúna | 4 |
| Palli | 0 |
| Kalli | 1 |
Tíðnitafla við setjum niðurstöðurnar upp í tíðnitöflu og teljum hve mörg tilfelli reyndust fara aldrei í bíó, einu sinni í bíó o.s.frv.
| Fjöldi bíóferða | Fjöldi tilfella (barna) | |
| 0 | 3 | Þrír fóru aldrei í bíó í mánuðinum. |
| 1 | 4 | Fjórir fóru einu sinni í bíó í mánuðinum. |
| 2 | 2 | Tveir fóru tvisvar í bíó í mánuðinum. |
| 3 | 0 | Enginn fór þrisvar sinnum í bíó í mánuðinum. |
| 4 | 1 | Einn fór fjórum sinnum í bíó í mánuðinum. |
Tíðni merkir hve oft atriði (tilfelli) koma fyrir. Í tölfræði væri talað um tilfellið "að fara einu sinni á mánuði í bíó" hefði tíðnina 4.
Hver væri tíðnin fyrir tilfellið: "Fer í bíó fjórum sinnum í mánuði" ?
Svar: Tíðnin væri 1
Súlurit oft er auðveldara og skýrara að lesa upplýsingar úr myndritum.
Setjum niðurstöðurnar fram með súluriti.

Línurit
Anna fór til Kanaríeyja í 7 daga frí og mældu hún lofthitann á hverjum degi alltaf á sama tíma kl: 16:00
Mælingar hennar litu þannig út.
|
Við setjum niðurstöðurnar upp í línurit |
Mælingar Önnu |
|
![]() |
Dagur nr: | Hiti í °C |
| 1 | 20 | |
| 2 | 25 | |
| 3 | 25 | |
| 4 | 30 | |
| 5 | 15 | |
| 6 | 25 | |
| 7 | 35 | |
| Á sjöunda degi var heitast eða 35°C. Á fimmta deginum var kaldast eða 15°C. | ||
Ath. ef þú vilt æfa notkun á línuritum og stöplaritum skoðaðu þá til gamans Tölvulæsivefinn og prófaðu verkefnin sem þer eru kynnt.
Aukaverkefni: Gerðu könnun á hitanum heima hjá þér á hverjum degi, alltaf á sama tíma og settu niðurstöðurnar uppí línurit eins og hér er sýnt, notaðu Tölvulæsivefinn til þess að aðstoða þig við að gera þetta í töflureikninum Excel.
Æfðu þig á þessum aðferðum og taktu síðan próf 1 í Tölfræði.
ps. mundu eftir að fylla út í tékklistann þinn jafnóðum.