© 2004  Rasmus ehf

Tölfræði

Prenta út

  Próf 2 

Leiðbeiningar til notenda.

Skynsamlegt væri að prenta prófið út á pappír og reikna það í rólegheitum. Lestu hverja spurningu vandlega, síðan skalt þú athuga þau svör sem sett eru fram og merkja við það svarið sem þú telur vera líklegast. Ath. Aðeins má merkja við eitt svar við hverja spurningu. Þegar allt er tilbúið sestu þá við tölvuna og merktu við réttu svörin.


Skoðaðu þessi myndrit og reikningsdæmi og merktu við rétt svar.

1.     Finndu meðaltalið af: 12, 6, 9, 8, 4, 5, 5

Merktu hér Möguleg svör:
A   7
B   6
C   8

Ath. hér gott að nýta sér töflureikninn Excel.


2.     Finndu miðgildið af: 12, 6, 9, 8, 4, 5, 5

Merktu hér Möguleg svör:
A   7
B   6
C   8

Ath. hér gott að nýta sér töflureikninn Excel.


3.     Finndu tíðasta gildið af: 12, 6, 9, 5, 8, 4, 5

Merktu hér Möguleg svör:
A   10
B   5
C   6

 


4.     Í læknisskoðun var massi 10 nemenda mældur í kg. 

41, 47, 57, 37, 55, 39, 34, 41 ,56, 53   Finndu meðaltalið

Merktu hér Möguleg svör:
A   48
B   47
C   46

Ath. hér gott að nýta sér töflureikninn Excel.


5.     Í læknisskoðun var massi 10 nemenda mældur í kg. 

42, 47, 57, 37, 55, 39, 34, 41, 56, 52   Finndu miðgildið

Merktu hér Möguleg svör:
A   44,5
B   42
C   47

Ath. hér gott að nýta sér töflureikninn Excel.


6.   Hitastig í eina viku í febrúar mánuði 2001 var mælt í °C og reyndist vera 5, 8, 7, 2, -3, -1, -4

Hver var meðalhitinn ?

Merktu hér Möguleg svör:
A   -3
B   3
C   2 

Ath. hér gott að nýta sér töflureikninn Excel.


7.    Raðaðu hitastigsmælingunum í dæmi 6 upp í vaxandi röð og finndu miðgildið.      

Merktu hér Möguleg svör:
A   -3
B   2
C   3,5

 Ath. hér gott að nýta sér töflureikninn Excel.


8.    Einkunnir nemenda í stærðfræði í 7. bekk voru þessar:

6, 7, 7, 8, 5, 7, 6, 9, 7, 4, 6, 8, 7, 5, 3, 10, 6

Finndu meðaleinkunn nemenda

Merktu hér Möguleg svör:
A   6
B   6,5
C   7

Ath. hér gott að nýta sér töflureikninn Excel.

 


9.    Finndu miðgildið úr talnasafninun í dæmi 8.

Merktu hér Möguleg svör:
A   7
B   6,5
C   6

Ath. hér gott að nýta sér töflureikninn Excel.

 


10.   Finndu tíðasta gildið úr talnasafninun í dæmi 8.

Merktu hér Möguleg svör:
A   6
B   6,5 
C   7 

 


 

Hlutfall réttra svara =

Rétt svör: Þín svör: