| © 2004 Rasmus ehf |
Tíminn |
|
Kynning 1

Þetta armbandsúr sýnir að klukkan er 25 mínútur yfir 10, Þú veist að litli vísirinn telur klukkutímana, stóri vísirinn mínúturnar og sá mjói sekúndur.
Nokkrar staðreyndir um tímann.
| Árið er 365 dagar ( 366 ) dagar ef hlaupár. |
| Árið er 12 mánuðir. |
| Mánuður er ca. 30 dagar. ( þeir eru mislangir ) |
| Árið er 52 vikur. |
| Vikan er 7 sólarhringar. |
| Sólarhringur er 24 klukkustundir. |
| Ein klukkustund er 60 mínútur. |
| Ein mínúta er 60 sekúndur. |
Hér á eftir koma nokkur dæmi um tímaútreikning, þau hjálpa þér kannski, en annars notar þú þær leiðir sem þér finnast auðveldastar eða árangursríkastar.
Dæmi 1:
Hvað eru 250 mínútur margar klukkustundir ?
Við sjáum að 60 mínútur ganga 4 sinnum upp
í 250 en 10 verða afgangs.
Eða 60+60+60+60+10 = 250 Þá eru 250 mínútur 4 klukkustundir og 10 mínútur.
Dæmi 2:
Óli fæddist 1989 Mamma hans fæddist 1957. Hver er aldursmunur Óla og móður hans ?
1989 - 1957 = 32 ár.
Dæmi 3:
Á mánudögum mætir Jóhanna í sex 40 mínútna langar kennslustundir. Hve margar klukkustundir er Jóhanna í skólanum ef þú reiknar ekki með frímínútum og hléum ?
Við breytum kennslustundum fyrst í mínútur:
40+40+40+40+40+40 eða 6 sinnum 40 = 240 mínútur. 240 mín. = 4 klst.
Dæmi 4:
Nonni á að mæta hjá tannlækni kl: 13:15 klukkan er 11:55. Hvað er langt þangað til hann á að mæta hjá tannlækninum.
Útkoman verður 1 klst. og 20 mín. Þú athugar
að ef þú vinnur með sekúndur, mínútur og klukkutíma þá eru
grunneiningarnar öðruvísi en í tugakerfinu.
Þú hefðir getað reiknað dæmið án þess að setja það formlega upp með því að hugsa út frá heilum tímum. Klukkuna vantaði 5 mínútur í 12:00 milli 12:00 og 13:00 eru 60 mínútur, Nonni átti að mæta 15 mínútur yfir 13:00 þá höfum við 5mín. + 60 mín. + 15 mín. = 80 mín.
80 mínútur eru síðan 1 klst. og 20 mín.
Dæmi 5:
Í alþjóðlegu hlaupi, hljóp Wilson Kipketer 800 metra á 1:43,60 Þetta er lesið sem 1 mínúta 43 sekúndur og 60 hundruðustu úr sekúndu. Heimsmetið var 1:41,10 Hverju munaði á tíma Wilsons og heimsmetstímanum.
Við sjáum að svarið verður 0:02,50
eða 2 sekúndur og 50 hundruðustu úr sekúndu. Með nákvæmum skeiðklukkum
er hægt að mæla hundraðshluta úr sekúndum.
Æfðu þig á þessum aðferðum og taktu síðan prófið úr tímakaflanum.
ps. mundu eftir að fylla út í tékklistann þinn jafnóðum.