© 2004  Rasmus ehf

Mælieiningar

Prenta út

  Mælieiningar próf 2


Leiðbeiningar til notenda.

Skynsamlegt væri að prenta prófið út á pappír og reikna það í rólegheitum. Lestu hverja spurningu vandlega, síðan skalt þú athuga þau svör sem sett eru fram og merkja við það svarið sem þú telur vera líklegast. Ath. Aðeins má merkja við eitt svar við hverja spurningu. Þegar allt er tilbúið sestu þá við tölvuna og merktu við réttu svörin.


Reiknaðu þessi dæmi og merktu við rétt svar.

1.     Hvað er eitt kíló mörg grömm ?

Merktu við Svarmöguleikar
a 100 g.

b

1000 g.
c 10 g.
d 10000 g.

2.   Hvað eru 658 grömm mörg hektógrömm ?

Merktu við Svarmöguleikar
a 6,58 hg.
b 65,8 hg.
c 6580 hg.
d 65,8 dag.

3.     Hvað eru 10,7 desigrömm (dg.) mörg dekagrömm (dag.) ?          

Merktu við Svarmöguleikar
a 0,0107 dag.
b 1,07 dag.
c 17 dag.
d 0,107 dag.


4.     Lóa ætlar að búa til sultu úr sólberjum Hún þarf 800 g. af sykri á móti 1 kg. af sólberjum. Hún býr til sultu úr 5 kg. af sólberjum. Hvað þarf hún mörg kg. af sykri ?

Merktu við Svarmöguleikar
a 40 kg.
b 5,8 kg.
c 4,8 kg.
d 4 kg.

5.    Reiknaðu í grömmum:  1,2 kg. + 75 g. + 12 dg. =

Merktu við Svarmöguleikar
a 1276,2 g.
b 12762 g.
c 1275,2 g.
d 1287 g.

6.   Heiðrún tekur 50 mg. C vitamínpillu daglega. Hve mörg grömm af C vitamíni borðar hún á 25 dögum ?                  

Merktu við Svarmöguleikar
a 2,5 g.
b 0,125 g.
c 1,25 g.
d 25 g.

7.    Í innihaldslýsingu á "Swiss miss" kakói kemur fram að næringargildi í 100 g. er: 6 g. prótein, 79 g. kolvetni og 10 g. fita. Orri hafði á nokkrum mánuðum lokið úr tveimur dósum, um það bil 1,5 kg. Hve mikið hafði hann fengið af kolvetnum úr "Swiss miss" kakói á þeim tíma ?               

Merktu við Svarmöguleikar
a 118,5 g.
b 11,85 g.
c 1185 cg.
d 1185 g.

8.  Hve mikið hafði Orri fengið mörg mg. af próteini úr "Swiss miss" kakóinu á sama tíma ?        

Merktu við Svarmöguleikar
a 9000 mg.
b 90000 mg.
c 90 mg.
d 9085 mg.

9.    Í fullu boxi af C vitamíni eru 120 töflur. Hver tafla er 200 mg. Hve mörg grömm af C vitamíni eru í fullu C vitamín boxi ?           

Merktu við Svarmöguleikar
a 12 g.
b 124 g.
c 2,4 g.
d 24 g.

10.  Hvað eru margar 200 mg. C vitamín pillur í einu kg. af C vitamíni ?                   

Merktu við Svarmöguleikar
a 5000 stk.
b 500 stk.
c 50 stk.
d 2000 stk.

 

Hlutfall réttra svara =

Rétt svör: Þín svör: