Verkefni 1.6

©feb. 2001  Rasmus ehf.

Myndrit

Smá æfing með skipunina "Format" sem upphitun.

Smelltu nú með músinni á reit A2.

Anna fór til Kanaríeyja í viku sumarfrí árið 2000. Hún skráði hjá sér hitann hvern dag og setti niðurstöðurnar inn í töflureikni. 

Ef þú skoðar skráninguna hjá henni sérð þú að hún hefur stækkað dálkana A og B til þess að textinn kæmist fyrir. 

Hvernig getur þú hjálpað henni að setja texta t.d. lóðrétt og láta tölvuna teikna myndrit til þess að túlka tölurnar ? 

Anna notaði letrugerð "Times new roman" og stafastærð 10 nema í fyrirsögninni notar hún feitletrun og stafastærð 14.

Skráðu niður sömu gildi í töflureikninn Excel. Blokkaðu síðan A2 og B2 og smelltu á skipunina "Format" og veldu "Format Cells".

Síðan ferð þú í "Format Rows" og stækkar hæð á rows í sillu 2 (row 2) í 100  einnig þarft þú að velja "Format Columns" og setja dálka A og B í breiddina 6.

  Þá lítur skjalið svona út.


Myndrit - línurit

Þá er komið að gerð myndrits, þú blokkar reitina B2 til og með B9 og velur hnappinn fyrir myndrit sjá myndina hér að neðan.

Smellir á hann með vinstri takkanum og skoðar úrvalið af möguleikunum sem birtast.

Prófaðu "XY scatter" og formið sem hér er sýnt.

   Við samþykkjum þessa mynd og hökum við "Finish". Ef þú hefðir ekki ákveðið fyrirfram talnasvæðið sem þú vilt nota þá hefðir þú geta gert það hér með því að smella hægra megin á myndina í "Data range" og blokkað síðan þær sellur sem þú vildir túlka.

 

Þannig lítur grafið út eftir að þú hefur samþykkt "Finish" Nú skalt þú blokka textann sem er hægra megin og henda honum út með því að ýta á "delete" takkann á takkaborðinu.

  Til að gera efnið læsilegra skulum við setja inn hjálparlínur sem mynda bakgrunn fyrir línuritið ( grafið) þú smellir með hægri takka músarinnar á línutritið og velur "Format gridlines".

  

Hakaðu við "Major gridlines" eins og hér er sýnt.


Myndrit - stöplarit

þú blokkar reitina B2 til og með B9 og velur happinn fyrir myndrit þá kemur þessi mynd í ljós. Veldu Column og þá tegund rits sem hér er sýnd.

 

Nú skulum við fikta aðeins meira og prófa smáskraut. Smelltu með hægri takka músarinnar á hvíta jaðarinn þá kemstu þú í þá valmynd sem hér er sýnd.

Samþykktu "Format Chart Area" .

Smelltu nú með vinstri takkanum á "Fill Effects".

Hakaðu við "Two color" og veldu þér liti undir liðnum "Color 1" og "Color 2".  Hakaðu síðan við "From corner"

Þá er stöplaritið komið og lítur vonandi betur út en þessi hugmynd sem hér er sýnd.

 

Aukaverkefni.

  1. Gerðu nú tilraunir með tölurnar og breyttu einhverju gildi og skoðaðu áhrifin á myndritin.
  2. Gerðu einnig tilraunir með aðrar gerðir af myndritum.