© feb. 2002 Tómas Rasmus.
Að ræsa Word forritið: Til að ræsa þennan hugbúnað þarft þú fyrst að tryggja þér að hann sé til staðar á þeirri tölvu sem þú ert að vinna með síðan eru nokkrar leiðir færar. Best er að setja upp ("Ikon") táknmynd forritsins á skjáborðið sjá liðinn táknmyndir á Tölvulæsivefnum. Annars er allt í lagi að smella fyrst á "Start" hnappinn og velja síðan liðinn "Programs" og velja síðan Microsoft Word.
Þegar þú hefur staðfest val þitt opnast mynd í likingu við myndinar hér fyrir neðan.
| Þegar þú biður um nýtt skjal ferð þú í File
hnappinn og biður um nýtt skjal ( New ..Ctrl+N ) eða smellir á litla hvíta blaðið fyrir neðan "File" valmyndina.
Sjá skýringarmynd hérna til hliðar.
|
|
| Ef myndin sem opnast sýnir ekki sömu möguleika og hér
að ofan þarft þú að skoða leiðbeiningarnar við innlestur á OFFICE 97. Ef möguleikinn "Save as HTML" er ekki fyrir hendi þá þarft þú að sækja viðbætur við OFFICE 97 á viðkomandi geisladisk. |
|
Hér er hægt að velja úr mismunandi útfærslum af tilbúnum formum fyrir hin ýmsu tilefni. Þægilegast er að nýta sér tilbúin form sem fylgja með í office 97 pakkanum. Einnig fylgja með á ramus.is tvær dæmigerðar síður fyrir byrjendur sem hver og einn getur tekið til sín og breytt að vild.