© feb. 2002 Tómas Rasmus.
Letur:
|
Ýmsar leiðir eru til að vinna með letur í Word þegar þú ert í heimasíðuham. Vinstra megin er skrunlína með yfirskriftinni Normal ef þú smellir á Normal þá opnast þær gerðir sem eru skilgreindar í Word. Til að ná letrinu inní það ástand sem þú óskar þá blokkar þú viðkomandi texta eins og venjulega í ritvinnslu og stekkur síðan með músarhnappinn í viðeigandi form. |
|
Að sjálfsögðu getur þú einnig unnið í klassískum leturgerðum, sett inn feitletrun, Ítalskt letur, undirstirikun og
breytt um liti á letri. Einnig hefur þú val um: spássíur, númeraðar línur. ásamt áherslumerkjum (bullets and numbering).
Allar klasískar aðgerðir með letur eru því leyfilegar. Þó er ekki hægt að treysta því að allar útsetningar skili sér fullkomlega þegar síðan er skoðuð með viðkomandi vafrara ( Web browser).
Stafamynstur: (Wordart) er hægt að sækja og setja inní skjal en þá er það alltaf vistað sem sérstakt myndefni og þarf þá að hafa áhyggjur af því þegar síðan er gefin út að það
gleymist ekki. Þú hefur ekki áhyggjur af innsettum tilbrigðum ef skjalið á að verða venjulegt ritvinnsluskjal.
Fljótandi texti er einnig fáanlegur með því að fara í insert og velja scrolling text, þó ber að athuga að allir slíkir extra stælar er kannski ósýnilegur eldri vefskoðurum.
En gerðu endilega tilraunir og vistaðu skjalið sem html skjal, prófaðu síðan að vekja það upp með þínum vefskoðara. Skynsamlegt væri líka að skoða hvernig það kemur út í óskildum vefskoðurum.
Ath. þetta er alls ekki tæmandi upplýsingar um leturgerðir, enda er úrvalið slíkt að það myndi fylla heila bók. Það væri mjög skynsamlegt hjá þér að fjárfesta í góðri bók um Microsoft Word. Ég mæli með bókinni Word fyrir Windows eftir Kristínu I. Jónsdóttir og Svein Baldursson, en það er mjög ítarlegt rit og ágætis verk.