© feb. 2002 Tómas Rasmus.
Innsetning myndefnis:
Við innsetningu á myndefni þarft þú að fara í Insert stikuna og velja leiðir til að ná þér í einhverjar myndir. Sjálfgefið er oftast næst að sækja þær í Clip art sem er sérstök mappa í Windows.
|
|
Einnig getur þú sótt þær í hvaða möppu sem er á harða disknum þínum. Til þess velur þú From File.
| Við veljum From file og þá er að staðsetja sig á réttum stað á disknum. Hér hef ég valið möppuna Netnám sem geymir það efni sem ég hef safnað að mér. |
|
|
| Hér birtast öll til felli sem forritið skilur sem myndefni svo sem skrár af gerðinni: " *.bmp, *.jpeg, *.gif "osfrv. Sjá þáttinn um skrár á Rasmus.is |
Þegur þú hefur ákveðið hvaða mynd þú vilt nota þá blokkar þú viðkomandi heiti og samþykkir Insert. Myndin birtist í upprunalegri stærð og er hægt að draga hana sundur og saman, ef þú hins vegar teygir hana of mikið eða þjappar er ekki víst að hún verði í nógu góðum fókus á vefnum.