© feb. 2002 Tómas Rasmus.
Krækjur í Word 97:
Til að setja inn krækjur eru tvær leiðir bestar.
| 1. Velja hnappinn sem merktur er með hnetti sitjandi á keðju. |
|
| 2. Fara í Insert og velja
Hyperlink
Á insert valmyndinni opnast möguleikar sem gera Microsoft Word að einhverju sem er miklu meira en venjuleg ritvinnsla. Hér er hægt að bæta inn ótrúlegustu hlutum eins og myndum, hreyfimyndum, hljóði, bakgrunnsmyndum og krækjum. Einnig er hér boðið uppá bókamerki eða bookmark. "Bookmark" er notað til þess að byggja tengingar inná einni síðu, það er sérstaklega hentugt ef síðan er það löng að hún fylli nokkrar skjámyndir. |
|
Krækjur eru hinsvegar notaðar til þess að tengjast öðrum vefsíðum hvar sem er í heiminum bæði á Verladarvefnum og staðarnetum sem og á einkatölvunni þinni. Aðrir þættir á Insert valmyndinni bíða betri tíma.
|
Insert Hyperlink. Hér getur þú sett inn heiti á vefslóð ef þú þekkir nafnið og
treystir þér til að fara rétt með stafsetninguna á því. Eins getur þú valið
Browse og látið tölvuna vafra inná þá slóð sem hentar. |
|
Mikilvægt er að neðst sé hakað við frasann
"Use relative path for
hyperlink".
Þegar þú ert ánægð(ur) með slóðina þá velur þú OK og staðfestir valið.
Þeir þættir sem eru í skjalinu þínu sem er þess efnis að þeir eiga að verða krækjuhnappur geta verið margs konar, bæði myndir og/eða texti. Þú þarft helst að vera búin(n) að velja þá, blokka textann eða smella á myndina, áður en þú velur Hyperlink og stafestir slóð.
Eftir það er nóg að smella með músinni á viðkomandi krækju sem var eins og áður segir mynd eða texti í viðkomandi vefskoaðara.