Bókamerki í Word 97     

© feb. 2002  Tómas Rasmus.

Bókamerki (bookmarks):  

Bókamerki er ákveðið með því að fara í Insert og velja Bookmark. 

Veljum Insert og Bookmark..

Þá opnast mynd sem sýnir þau bókamerki sem eru til fyrir á þinni vefsíðu. Þú einfaldlega setur inn nýtt nafn og velur add hnappinn. Gott er að hafa hakið á við textann hidden bookmarks til að þau sjáist ekki. Notaðu frekar myndir eða eigin texta sem tilvísun.  Hér er bókamerkið kallað toppur.


 

 

Við tengjum bókamerki með því að fara í Insert og velja Hyperlink. 

 

1. Veldu hnapp sem merktur er með hnetti sitjandi á keðju. Eða !!

2. Farðu í Insert og veldu Hyperlink. 

"Bookmark" er notað til þess að staðsetja sig inná einni síðu, það er sérstaklega hentugt ef síðan er það löng að hún fylli nokkrar skjámyndir. 

Krækjur eru hinsvegar notaðar til þess að tengjast öðrum vefsíðum hvar sem er í heiminum bæði á Verladarvefnum og staðarnetum sem og á einkatölvunni þinni. 

Við notum krækjur einnig til þess að tengjast bókamerkjum. 

Insert Hyperlink. Hér velur þú neðri línuna þar sem stendur Named location in file (optional). Veldu síðan Browse. Þá getur þú fest krækjuna á viðkomandi bókamerki. 

Þeir þættir sem eru í skjalinu þínu sem er þess efnis að þeir eiga að verða bókamerki geta verið margs konar, bæði myndir og/eða texti, líkt og um krækju væri að ræða. Þú þarft helst að vera búin(n) að velja þá, blokka textann eða smella á myndina, áður en þú velur Hyperlink og staðfestir bókamerkið. 

Eftir það er nóg að smella með músinni á viðkomandi krækju sem var eins og áður segir mynd eða texti í viðkomandi vefskoðara. Kræjan tengir þig þá inná viðkomandi síðuhluta svipað og skipunin (GOTO) sem oft er notuð á algengum forritunarmálum.