© feb. 2002 Tómas Rasmus.
Póstur til þín:
Að tengja póst á þína síðu. Fyrst þarft þú að vera búin(n) að blokka textann eða smella á táknmynd sem nota á sem tilvísun við pósttengið. Pósttengið er í eðli sínu krækja..
Til að tengja póst ferð þú að mjög líkt og um krækju (hyperlink) væri að ræða. Þú velur Insert Hyperlink. Til þess eru amk. tvær leiðir færar. (Ath. líka Ctrl+k)
|
1. Veldu hnapp sem merktur er með hnetti sitjandi á keðju. |
|
| 2. Farðu í Insert og veldu Hyperlink. Þegar þú hefur staðfest val þitt opnast mynd í likingu við myndina hér til hægri. |
|
Insert Hyperlink. Hér velur þú efri línuna þar sem stendur Link to file or url: Hún
mun birtast auð en ekki með slíkri útfyllingu sem hér er sýnd nema að krækjan hafi
verið skilgreind áður.
Í staðinn fyrir frasann sem er upphleyptur: rasmus@ismennt.is setur þú póstfangið
þitt. Eftir það er nóg að smella með músinni á viðkomandi krækju sem var eins og áður segir mynd eða texti í viðkomandi vefskoaðara. Kræjan kallar þá á póstgluggann og þeir sem vilja senda þér eitthvað eru þá komnir með allt sem þarf til að rugga þeim
skilaboðum áfram.